Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 311/2023-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 311/2023

Fimmtudaginn 7. september 2023

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 19. júní 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 31. maí 2023, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 20. janúar 2023 og var umsóknin samþykkt 9. febrúar 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 31. maí 2023, var kæranda tilkynnt að réttur hennar til atvinnuleysisbóta væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar vegna höfnunar á starfi. Í kjölfar frekari skýringa frá kæranda var mál hennar tekið fyrir að nýju. Með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 5. júní 2023, var kæranda tilkynnt að fyrri ákvörðun í máli hennar væri staðfest þar sem hún hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu, þrátt fyrir ný gögn.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 19. júní 2023. Með bréfi, dags. 24. júlí 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 18. ágúst 2023 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 21. ágúst 2023. Athugasemdir bárust ekki.


 

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hún hafi hafnað starfi á bar þar sem hún megi ekki vinna á bar vegna trúar sinnar og menningar. Slíkt sé hægt að staðfesta hjá félagasamtökunum ICCI.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 20. janúar 2023. Með erindi, dags. 9. febrúar 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann 11. maí 2023 hafi Vinnumálastofnun borist tilkynning þess efnis að kærandi hefði hafnað starfi hjá B ehf. Um hafi verið að ræða starf aðstoðarmanns í eldhúsi en kæranda hafi verið miðlað í umrætt starf af Vinnumálastofnun. Af upplýsingum frá atvinnurekanda megi ráða að kærandi hafi sent honum tölvupóst og greint frá því að hún gæti ekki starfað hjá honum. Með erindi, dags. 12. maí 2023, hafi þess verið óskað að kærandi veitti stofnuninni skýringar á ástæðum þess að hún hafi hafnað starfi hjá B ehf.

Vinnumálastofnun hafi borist skýringar kæranda þann 12. maí 2023. Kærandi hafi greint frá því að í starfinu fælist afgreiðsla á bar. Hún væri múslimi og gæti því ekki tekið slíku starfi trúar sinnar vegna. Með erindi, dags. 31. maí 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að réttur hennar til greiðslu atvinnuleysistrygginga væri felldur niður í þrjá mánuði sökum þess að hún hafi hafnað starfi hjá B ehf. Sú ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. jafnframt 1. mgr. 61. gr. sömu laga.

Þann 1. júní 2023 hafi Vinnumálastofnun borist frekari skýringar á ástæðum þess að kærandi hefði starfi hjá B ehf. Kærandi hafi áréttað að hún gæti ekki unnið á bar trúar sinnar vegna. Samkvæmt trú hennar sé óheimilt að selja eða vinna með eitthvað á bar. Kærandi hafi jafnframt greint frá því að hún gæti hafið störf þann 14. ágúst 2023 á C en fram að þeim tíma þyrfti hún greiðslur atvinnuleysistrygginga.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 31. maí 2023, hafi verið tekin fyrir að nýju í kjölfar þess að stofnuninni hafi borist frekari skýringar frá kæranda. Með erindi, dags. 5. júní 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að það væri mat Vinnumálastofnunar að staðfesta bæri fyrri ákvörðun í máli hennar, enda hefði sú ákvörðun að geyma efnislega rétta niðurstöðu þrátt fyrir að ný gögn hefðu borist í máli hennar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð á meðan þeir leiti nýs starfs. Með þessu sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Gert sé ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu. Ríkar kröfur beri að gera til þeirra sem hafni starfi á innlendum vinnumarkaði að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Eitt af almennum skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að vera í virki atvinnuleit, sbr. a. liður 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit.

Fyrir liggi að kærandi hafi hafnað starfi hjá B ehf. Í kjölfarið hafi henni verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. einnig 1. mgr. 61. gr. sömu laga. Ákvæði 1. mgr. 57. gr. sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Í athugasemdum með 57. gr. í frumvarpi því sem hafi orðið að lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé tekið fram að það að hafna því að fara í atvinnuviðtal eða sinna ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar hafi sömu áhrif og sú ákvörðun að taka ekki starfi sem bjóðist. Ástæðan sé einkum sú að atvinnuviðtal sé venjulega meginforsenda þess að hinum tryggða verði boðið starf og leggja megi þá ákvörðun að jöfnu við það að hafna starfi.

Samkvæmt 4. mgr. 57. gr. skuli Vinnumálastofnun meta við ákvörðun um viðurlög samkvæmt 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna atvinnuviðtali hafi verið réttlætanleg en í 4. mgr. segi orðrétt:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Vinnumálastofnun sé gert að meta skýringar atvinnuleitanda vegna höfnunar á atvinnutilboði með hliðsjón af þeirri ríku skyldu sem hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til að vera reiðubúnir að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara, og hafa til þess vilja og getu. Gert sé ráð fyrir því að Vinnumálastofnun sé heimilt að líta til aldurs hins tryggða, félagslegra aðstæðna tengdum skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima við ákvörðun um hvort hinn tryggði skuli sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 57. gr. laganna. Enn fremur sé Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar í boði sé starf fjarri heimili hans sem geri kröfur um að hlutaðeigandi flytji búferlum.

Þær skýringar sem kærandi hafi veitt fyrir ástæðu höfnunar á starfi hjá B ehf. lúti að því að hún megi ekki, sökum trúar sinnar, starfa á bar. Rétt sé að taka fram að kærandi hafi ekki áður upplýst Vinnumálastofnun um þær takmarkanir á störfum sem hún geti unnið sökum trúarskoðana sinna. Það sé á ábyrgð atvinnuleitanda að stofnuninni berist réttar og nákvæmar upplýsingar um vinnufærni og þau störf sem viðkomandi telji sig ekki geta unnið. Slíkt leiði meðal annars af ákvæði 1. og 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Að mati Vinnumálastofnunar geti skýringar kæranda, þess efnis að hún hafi hafnað umræddu starfi hjá B ehf. sökum trúar sinnar, ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Í ákvæði 4. mgr. 57. gr. laganna sé ekki gert ráð fyrir að réttlætanlegt sé að hafna almennum störfum á grundvelli trúarskoðana. Þá vísi Vinnumálastofnun jafnframt til þess að á meðal almennra skilyrða fyrir greiðslum atvinnuleysistrygginga sé að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit, sbr. a. liður 1. mgr. 13. gr. laganna. Í virkri atvinnuleit felist meðal annars að vera reiðubúinn til að taka hverju því starfi sem greitt sé fyrir, hvar sem er á Íslandi, án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu, sbr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Að mati Vinnumálastofnunar samræmist það ekki skilyrði laganna um virka atvinnuleit að atvinnuleitandi geti af trúarástæðum hafnað almennum störfum sem felist í sölu eða meðferð áfengis, eða séu unnin í návígi við áfengi. Lög um atvinnuleysistryggingar geri ekki ráð fyrir slíkum almennum undanþágum frá skilyrðinu um virka atvinnuleit. Vinnumálastofnun vísi máli sínu til stuðnings til úrskurðar nefndarinnar í máli nr. 513/2021.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi hafi hafnað starfi hjá B ehf. í skilningi 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og ekki haft þar að baki gildar ástæður, sbr. 4. mgr. sömu greinar. Því beri kæranda að sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. maí 2023, hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sökum þess að hún hafi hafnað starfi hjá D ehf. Þegar kæranda hafi verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laganna með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 31. maí 2023, sökum þess að hún hafi hafnað starfi hjá B ehf. hafi því komið til ítrekunaráhrifa fyrri viðurlaga hennar, sbr. 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Því skuli hún ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysistrygginga fyrr en að þremur mánuðum liðnum.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í þrjá mánuði sökum þess að hún hafi hafnað starfi hjá B ehf., sbr. 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sbr. 1. mgr. 61. gr. sömu laga.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 57. gr., sbr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segir svo í 4. mgr. 57. gr. laganna:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Samkvæmt gögnum málsins hafnaði kærandi starfi hjá B ehf. Kærandi hefur vísað til þess að hún hafi ekki getað tekið starfinu vegna trúar sinnar þar sem óheimilt sé að vinna á bar.

Ákvæði 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 gerir ekki ráð fyrir að réttlætanlegt sé að hafna almennum störfum á grundvelli trúarskoðana. Sú ástæða sem kærandi hefur gefið er því ekki þess eðlis að hún réttlæti höfnun á umræddu starfi, sbr. 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006. Úrskurðarnefndin bendir á að í 1. mgr. 13. gr. laganna er fjallað um almenn skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum er að vera í virkri atvinnuleit samkvæmt 14. gr. en í því felst meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt er fyrir, sbr. c. liður 1. mgr. ákvæðisins.

Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:

„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“

Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 12. maí 2023 á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006, staðfest.

 

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 31. maí 2023, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

 Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum